
Hér má finna yfirlit yfir þjónustu sem veitt er á hlaupdag fyrir allar vegalengdir. Til að fá nánari upplýsingar um þjónustuna fyrir þína vegalengd geturðu smellt á viðeigandi vegalengd hér að neðan.
Drykkjarstöðvar
Í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka eru í heildina 10 drykkjarstöðvar, staðsettar á um það bil 4-5 kílómetra fresti. Á öllum drykkjarstövunum verður boðið upp á Gatorade og vatn. Smelltu hér til að kynna þér nánar staðsetningar drykkjarstöðvanna.
Töskugeymsla
Töskugeymsla er staðsett í Hljómskálagarðinum, nálægt rásmarkinu við Sóleyjargötu. Þar geta keppendur komið fatnaði og öðru dóti fyrir í geymslu. Á hlaupanúmerinu er sérstakur miði sem skal festa við tösku. Starfsfólk vaktar geymsluna en þó er engin ábyrgð tekin á fjármunum sem þar eru geymdir. Athugið að aðeins er hægt að geyma eina tösku á hvern hlaupara. Opnunartími töskugeymslu er frá kl. 07:00-15:00
Salerni
Færanleg salerni verða í Miðbæ Reykjavíkur og nálægt 4 km, 8 km, 12 km, 16 km, 20 km, 25 km, 30 km, 35 km og 39 km. Salerni fyrir fatlaða við Eiðisgranda, Bryggjuhverfi og við rás og endamark. Við rás- og endamark verða einnig færanleg salerni en þar má einnig nálgast tíðavörur frá Herbox. Sjá nánar á korti af hlaupaleiðum.
Tímataka
Sjálfvirk tímataka er í hlaupinu. Notaður verður tímatökubúnaður sem samanstendur af mottum í rásmarki sem hlauparar fara yfir í byrjun og enda hlaups en tímatökuflagan er innbyggð í hlaupanúmerinu hjá hverjum og einum. Corsa sér um tímatökuna og verða úrslit send í tölvupósti á keppendur auk þess á corsa.is.
Hraðahólf
Þátttakendur í öllum vegalengdum hlaupa á mismunandi hraða. Þar sem fjöldinn er mikill og til að forðast þrengsli, árekstra og frammúrtöku á fyrstu kílómetrunum, er mikilvægt að þátttakendur áætli hlaupahraða sinn og velji viðeigandi hraðahólf.
Frekari upplýsingar má sjá hér.
Verðlaun
Allir þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka fá verðlaunapening. Fyrstu einstaklingarnir í karla-, kvenna- og kváraflokki með keppnismiða í öllum vegalengdum fá peningaverðlaun og gjafir frá samstarfsaðilum hlaupsins. Einnig eru veitt aldursflokkaverðlaun fyrir þátttakendur með keppnismiða en þau verða afhent síðar.
Sjá nánar um verðlaun hér.
Brautargæsla
Um 500 starfsmenn starfa við brautargæslu á hlaupdag. Þeir sjá um að vísa hlaupurum veginn og stýra umferð. Hlauparar ættu samt sem áður að kynna sér vel hlaupaleiðina hér því starfsfólk eru ekki sjáanlegir á hluta leiðarinnar t.d. á beinum köflum.
Sjúkragæsla
Sjúkragæsla með lækni og hjúkrunarfræðingum er á marksvæði að loknu hlaupi. Aðstoð á meðan hlaupinu stendur á hlaupaleið veita almennir starfsmenn hlaupsins. Sú þjónusta felst í því að hringja eftir þeirri hjálp sem þarf hverju sinni.
Hraðastjórar
Í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka býðst hlaupurum í 10 km, hálfmaraþoni og maraþoni aðstoð við að ná hraðamarkmiðum sínum. Hraðastjórar, sem eru vanir hlauparar, munu hlaupa áður nefndar vegalengdir á ákveðnum jöfnum hraða. Þeir verða í merktum vestum og með blöðrur til að hlauparar geti fylgt þeim.
Sund
Reykjavíkurborg býður öllum þátttakendum í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka í sund á hlaupdag eða daginn eftir hlaup. Framvísa þarf hlaupanúmeri til að fá frían aðgang. Smellið hér til að skoða upplýsingar um sundlaugarnar í Reykjavík og opnunartíma þeirra.
Óskilamunir
Eftir hlaupið verður hægt að nálgast óskilamuni alla virka daga á skrifstofu Íþróttabandalags Reykjavíkur á Engjavegi 6, 104 Reykjavík. Símanúmerið á skrifstofunni er 535-3700. Óskilamunum verður fargað 2 vikum eftir hlaupadag séu þeir ekki sóttir.
Myndatökur
Marathon Foto er opinber ljósmyndunar samstarfsaðili Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanki og verða ljósmyndarar Marathon Foto á svæðinu og reyna að ná myndum af sem flestum þátttakendum í hlaupinu. Hlaupurum býðst að kaupa myndir af sér á mínum síðum fyrir og eftir hlaup. Póstur verður sendur á þátttakendur þegar nær dregur.











