Rás- og marksvæði

Ræst verður frá Sæmundargötu en þátttakendur koma í mark í Geirsgötu. Þátttakendum er bent á að raða sér upp í Sæmundargötu og nýta bogann við Háskóla Íslands fyrir hlaup. Við minnum fólk á að mæta tímanlega til þess að stilla sér upp. Þau bílastæði sem næst eru svæðinu eru við Háskólabíó og Þjóðarbókhlöðuna. Hér að neðan má sjá hvernig ráshóparnir eru merktir.

Hraðahólf

Þátttakendur í öllum vegalengdum koma til með að hlaupa á mismunandi hraða. Þar sem fjöldi er mikill og til að forðast þrengsli í upphafi og árekstrum og frammúrtöku á fyrstu km, er mikilvægt að þátttakendur áætli hlaupahraða sinn og finni viðeigandi hraðahólf. Nánari upplýsingar um hraðahólf má finna hér.

Styrktaraðilar

  • Íslandsbanki
  • Corsa
  • 66 Norður
  • Gatorade
  • Holdur Car Rental Iceland