Hlauparar

Kristófer Oliversson
Hleypur fyrir Bergid headspace og er liðsmaður í Center Hotels - Hlaupahópur
Samtals Safnað
Ákjósanleg greiðsluleið

Ég er stoltur hluti af hlaupahópi Center Hotels sem tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu enn eitt árið.
Í ár hlaupum við til styrktar Bergið Headspace, sem sinnir ómetanlegu starfi fyrir ungt fólk á Íslandi. Bergið veitir einstaklingsmiðaða ráðgjöf og þjónustu til ungmenna frá 12 til 25 ára. Rekstur Bergsins byggir að hluta á stuðningi almennings og fyrirtækja. Stuðningur hlaupara í Reykjavíkurmaraþoninu skiptir þar sköpum fyrir starfsemi Bergsins og gerir þeim kleift að halda áfram að veita ungmennum um allt land gjaldfrjálsan stuðning.
Andleg heilsa ungs fólks skiptir okkur öll máli og því skiptir miklu að tryggja að þessi mikilvæga þjónusta geti haldið áfram að vaxa og hjálpað sem flestum.
Ef þú hefur tök á því væri ég afar þakklátur ef þú myndir heita á mig. Hvert framlag skiptir máli, stórt sem smátt.
Hvert áheit vegur tvöfalt!
Center Hotels mun eins og áður jafna öll áheit sem berast á mig eða hlaupahópinn, þannig að framlag þitt hefur tvöföld áhrif og rennur allt til Bergsins Headspace.
Takk kærlega fyrir stuðninginn. Saman getum við lagt okkar af mörkum til að fleiri ungmenni fái þann stuðning sem þau þurfa.
Bergid headspace
Bergið headspace veitir ungmennum á Íslandi á aldrinum 12–25 ára gjaldfrjálsa ráðgjöf og stuðning. Hjá okkur geta ungmenni komið og rætt það sem þeim liggur á hjarta – án tilvísunar, án greiningar og án þess að þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði. Bergið er með starfsemi á Suðurgötu 10 í Reykjavík og einnig í Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og á Akureyri. Auk þess er í boði fjarþjónusta fyrir ungmenni um allt land. Á hverri viku leita um 120 ungmenni til Bergsins eftir stuðningi. Stuðningur hlaupara í Reykjavíkurmaraþoninu skiptir því sköpum fyrir starfsemina og hjálpar okkur að halda áfram að veita ungmennum um allt land gjaldfrjálsan stuðning. Ef þú ert að velja málefni til að hlaupa fyrir – hlauptu fyrir ungt fólk. Hlauptu fyrir Bergið. 💚
Nýir styrkir












