Hlauparar

Samtals Safnað
Markmið
Ákjósanleg greiðsluleið
Ég hleyp fyrir Gló Æfingastöð sem hefur reynst okkur svo vel síðustu ár, þar er yndislegt starfsfólk sem gerir það að verkum að Viktori Nóa okkar finnst alltaf gott og gaman að mæta en í ár er verið að safna fyrir endurbótum og bættu aðgengi í húsnæði þeirra á Háaleitisbraut, svo þau geti áfram tekið vel á móti fjölskyldum eins og okkur sem nýta þjónustu þeirra :)
Gló Æfingastöð
Gló Æfingastöð er miðstöð þjónustu og þekkingar í snemmtækri íhlutun og endurhæfingu fyrir börn og ungmenni. Sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar okkar búa yfir víðtækri reynslu af starfi með börnum, ungmennum og fjölskyldum. Við leggjum áherslu á samþætta þjónustu og gott samstarf við aðra sem veita þjónustu á sviði menntunar, félagslegs stuðnings og heilbrigðisþjónustu. Markmið með allri þjónustu á vegum Gló Æfingastöðvar er að efla þátttöku í daglegu lífi og byggja grunn að farsælli framtíð.
Nýir styrkir
Stöðuþráður hlaupara
Engir styrkir hafa borist enn












