Hlauparar

Samtals Safnað
Markmið
Ákjósanleg greiðsluleið
Ég hleyp í Íslandsbankahlaupinu í haust til styrktar Reykjalundi – stað sem á stóran þátt í því að ég er hér í dag.
Eftir að ég fékk illkynja lungnakrabbamein og missti meirihluta hægra lunga var ekkert sjálfsagt lengur.
Að vera á lífi í dag – hvað þá að hlaupa – er alls ekki sjálfsagt.
Á Reykjalundi byrjaði ég upp á nýtt.
Fyrst með því að rölta nokkrar holur á par 3 golfvelli.
Síðan að ganga golfvelli.
Nokkrum árum seinna var ég farin að strunsa 18 holur með rafmagnskerruna mína.
Í dag er ég farin að hlaupa.
Þetta ferðalag hefði ég aldrei trúað að væri mögulegt.
Núna langar mig að gefa til baka.
👉 Ef þú getur, styrktu hlaupið mitt.
👉 Ef þú getur ekki, deildu – það skiptir líka máli.
Þú ert að hjálpa öðrum að fá sama tækifæri og ég fékk.
Takk fyrir ❤️
Reykjalundur endurhæfing
Hollvinasamtök Reykjalundar eru mikilvægur bakhjarl í þágu endurhæfingar á Reykjalundi.
Nýir styrkir











