Hlauparar

Hjörtur Elías Ágústsson
Hleypur fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna
Samtals Safnað
Markmið
takk fyrir stuðninginn!



Ég heiti Hjörtur Elías og ég vil hlaupa fyrir SKB vegna þess að ég vil styrkja börn sem eru að glíma við erfið veikindi hvort sem það er krabbamein eða hvítblæði. Ég lenti sjálfur í krabbameinsmeðferð tvisvar þegar ég var aðeins 8 ára gamall og fór út til Svíþjóðar í beinmergsskipti. Engin börn eiga skilið að glíma við svona veikindi. Enginn á að glíma við svona kvikindi eins og krabbamein. Krabbamein og börn eiga ekkert sameiginlegt. Ég vill hlaupa fyrir SKB og veita þeim styrk því ég vill gera góðverk ásamt því að hlaupa til gamans.
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna var stofnað 1991 af foreldrum barna með krabbamein en árlega greinast 12-14 börn með krabbamein á Íslandi. Tilgangur félagsins er að styðja krabbameinssjúk börn og aðstandendur og gæta hagsmuna þeirra á öllum sviðum. Það sinnir fræðslu- og útgáfustarfsemi um sérstöðu og þarfir krabbameinsveikra barna og um síðbúnar afleiðingar eftir krabbameinsmeðferð. Hvatningarstöð félagsins er vestan við Olís-stöðina í Ánanaustum. Sjá viðburðinn: Hvatningarstöð SKB í Reykjavíkurmaraþoni https://www.facebook.com/events/1051078383502754
Nýir styrkir

















