Hlauparar

Samtals Safnað
Ákjósanleg greiðsluleið



Reykjadalur er draumadalurinn okkar - þar hefur Júlli minn dvalið á sumrin og í helgardvölum á veturnar frá því hann var bara smá polli.
Alltaf umvafinn einstökum kærleik og vinskap þeirra mögnuðu ungmenna og fagfólks sem þar starfa. Í Reykjadal ríkir einstök stemning þar sem starfsfólk leggur sig allt fram við kalla fram bros og hlátur í öruggu umhverfi.
Júlla fötlun er flókin og kallar á mikið umfang og bras í umönnun - en í Reykjadal er því öllu mætt með seiglu og lausnum.
Nú er í plönum nauðsynleg uppbygging sem er gífurlega spennandi því Reykjadalur skiptir öllu máli í lífi líti fatlaðra barna og ungmenna - það er okkar allra að standa vörð um Reykjadal - þetta er perla sem samfélagið okkar má sannarlega vera stolt af.
hvert einasta framlag skiptir því máli - hjartans knús frá mér og Júlla
Reykjadalur - helgar og sumarbúðir
Markmið okkar í Reykjadal er að bjóða upp á fjölbreytt tómstundartækifæri þar sem börn og ungmenni fá að njóta sín á eigin forsendum. Vinátta og gleði er mikilvægur þáttur í starfseminni þar sem áhersla er lögð á að öll geti eignast vini og séu fremst á meðal jafningja. Boðið er upp á sumar- og helgardvalir fyrir fötluð börn og ungmenni í Mosfellsdal allt árið um kring. Auk þess er boðið upp á Ævintýrabúðir fyrir börn með ADHD, einhverfu og andlegar áskoranir og fjölbreytta samveru og jafningastuðning fyrir ungt fatlað fólk og fjölskyldur þeirra. Alls nýta sér um 400 börn og ungmenni úrræði á vegum Reykjadals ár hvert.
Nýir styrkir