Hlaupahópur

501st Legion Icelandic Garrison
Hleypur fyrir Barnaspítalasjóður Hringsins, Vökudeild, Hringurinn
Samtals Safnað
Markmið
Ákjósanleg greiðsluleið



Góðu vondu gæjarnir!
The 501st Legion eru alþjóðleg góðgerðarsamtök þar sem meðlimir klæðast nákvæmum eftirlíkingum búninga „vondu“ karlanna og kvenna úr Star Wars heiminum. Með því gleðja þau unga sem aldna og styrkja um leið hin ýmsu góðgerðarmál.
Við erum fjölbreyttur hópur fólks sem á það sameiginlegt að elska Stjörnustríðskvikmyndirnar og vilja láta gott af sér leiða. Hópurinn mun taka bæði þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í fullum skrúða. Aðrir þátttakendur í hlaupinu og áhorfendur munu því fá að sjá Svarthöfða, Stormtroopers, Mandalorian og fleiri vel valda karaktera úr Stjörnustríðsheiminum á svæðinu. Við hlaupum kannski ekki hratt en komumst í mark og gleðjum vonandi aðra með þátttökunni.
Íslenska setulið alheimsveldisins sækist eftir þínum styrk og hvatningu í maraþoninu 22. ágúst næstkomandi og með þinni hjálp munum við styðja Vökudeild Landspítalans. Við hlökkum til hlaupsins og vonumst til að sjá ykkur sem flest.
May the Force be with you!
Barnaspítalasjóður Hringsins, Vökudeild, Hringurinn
Hringurinn er kvenfélag, stofnað 1904. Félagið hefur að markmiði að vinna að líknar- og mannúðarmálum, sérstaklega í þágu barna.
Hlauparar í hópnum
Nýir styrkir


















