10 K - General registration

Ragnheiður Erla Hjaltadóttir

Supporting AHC association of Iceland

Total collected

75,000 kr.
75%

Goal

100,000 kr.

Preferred Payment Method

Mastercard

Elsku Sunna mín greindist 14 mánaða með AHC, Alternating Hemiplegia of Childhood sem er afar sjaldgæfur og framsækinn taugasjúkdómur. AHC er oft kallaður flóknasti taugasjúkdómur í heimi þar sem einkenni AHC innihalda einkenni flestra annarra taugasjúkdóma. AHC einkennist af endurteknum, tímabundnum helftarlömunarköstum sem ná til annarrar eða beggja líkamshliða samtímis. Sunna hefur einnig glímt við Dystonia, krampaköst í útlimum síðan hún var ungabarn. Að auki er hún greind með flogaveiki, einhverfu og þráhyggjuröskun. Þrátt fyrir að sjúkdómurinn sé kenndur við bernskuna þá eldist hann ekki af börnum og ekki er vitað um lífslíkur. Eftir því sem börnin eldast kemur í ljós varanlegur seinþroski. Sem dæmi má nefna; erfiðleika við fín og grófhreyfingar, skertan vitsmunaþroska, seinkun í málþroska og erfiðleika í félagslegum samskiptum. 

AHC Samtökin á Íslandi voru stofnuð af foreldrum Sunnu árið 2009 og við höfum byggt upp öflugt tengslanet foreldra og fagfólks, unnið með vísindafólki, læknum og foreldrum erlendra AHC barna að því að stuðla að rannsóknum og bættri greiningu. Við höfum gefið út og framleitt fræðslu og heimildarefni um AHC, meðal annars heimildarmyndina Human Timebombs sem notuð er víða um heim til fræðslu og kynningar um AHC. Stór og gríðarlega mikilvæg rannsókn er í gangi við Háskólann í Leiden, Hollandi sem AHC samtökin eru að standa straum af og allur ágóði upphæðar sem safnast í Reykjavíkurmaraþoninu fer í þessa rannsókn.

Ég hleyp 10 km með fjölskyldu, vinum og  elsku Sunnu minni sem mun rúlla með Sigga pabba sínum á hjólastólahjólinu sínu. Áfram Sunna og takk fyrir stuðninginn.

AHC association of Iceland

AHC samtökin voru stofnuð árið 2009 í þeim tilgangi að finna meðferð við Alternating Hemiplegia of Childhood

New pledges

Pledge history

Ragnar Kr
Amount25,000 kr.
Gangi vel
Aðalbjörg Hjartardottir
Amount5,000 kr.
No message
Valdís Björk
Amount5,000 kr.
Fyrir Sunnu Valdísi❤️
Dísa og Atli
Amount5,000 kr.
No message
Amount10,000 kr.
Áfram þið ♥️
Særún og Davíð
Amount5,000 kr.
Áfram AHC
Sigriður Einarsdóttir
Amount5,000 kr.
No message
Jón Nonni Valberg
Amount10,000 kr.
Áfram þið og Sunna sæta
WILLMA
Amount5,000 kr.
No message

Styrktaraðilar

  • Íslandsbanki
  • Corsa
  • 66 Norður
  • Gatorade
  • Holdur Car Rental Iceland