
Að skráningu lokinni eignast hver einstaklingur sitt svæði inná skráningarsíðunni Corsa. Til að skrá sig inn á Mínar síður þarf að nota það netfang sem notast var við til að skrá þátttöku í hlaupið. Hægt er að framkvæma eftirfarandi aðgerðir á Mínum síðum:
- Versla varning hlaupsins (Lokar í lok dags miðvikudag fyrir hlaup)
- Breyta persónuupplýsingum*
- Breyta um vegalengd*
- Gera nafnabreytingu*
- Skipta um vegalengd (Greiða þarf mismun á dýrari vegalengd)*
- Stilla birtingu persónuupplýsinga - Ef still er á "private" þá er hlaupari ekki í úrslitum eða á þátttakendalista.*
- Búa til áheitasíðu hlaupara
- Velja góðgerðarfélag
- Búa til áheitasíðu hlaupahóps
- Sækja kvittun
*ATH! Ekki er hægt að gera breytingar á skráningu eftir miðnætti á miðvikudegi fyrir hlaup.











