Hlauparar

Samtals Safnað
Markmið
Ákjósanleg greiðsluleið


Ég ætla að hlaupa 10 km á laugardaginn fyrir Einhverfusamtökin 💙
Mörg börn með greiningar fá ekki þann stuðning sem þau þurfa á að halda. Gabríel Pálmi frændi minn er eitt þeirra barna sem kerfið hefur brugðist, m.a. skólakerfið. Gabríel hefur þurft að takast á við ýmsar áskoranir á sinni stuttu ævi en hefur mætt þeim öllum af ótrúlegum styrk og hugrekki.
Gabríel er sannkölluð hetja í mínum augum. Hann er einn hugrakkasti og dásamlegasti strákur sem ég þekki og ég dáist að honum á hverjum degi.
Þetta hlaup er fyrir Gabríel og öll hin börnin sem eiga skilið að fá þá hjálp og þau tækifæri sem þau þurfa til að blómstra. 💚
Einhverfusamtökin
Einhverfusamtökin fta., voru stofnuð 1977. Í samtökunum er fólk á einhverfurófi, foreldrar, fagfólk og aðrir sem áhuga hafa á að beita sér fyrir bættri þjónustu við einhverfa. Félagsmenn eru nú 1256. Starfandi eru frístundahópar fyrir unglinga og stuðningshópar fyrir fullorðna bæði Höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Á höfuðborgarsvæðinu eru einnig starfandi borðspilahópur og handavinnuhópur fyrir fullorðið einhverft fólk. Einnig er starfandi stuðningshópur fyrir foreldra. Samtökin hafa lagt ríka áherslu á hagsmunagæslu, fræðslu- og kynningarstarfsemi. Helstu baráttumálin eru styttri biðlistar eftir greiningu, aukin atvinnutækifæri og fleiri búsetuúrræði. Einhverfusamtökin eru með skrifstofu í Reykjavík.
Nýir styrkir












