Hlaupastyrkur

Hlauparar

10 km - Almenn skráning

Ragnheiður Erla Hjaltadóttir

Hleypur fyrir AHC samtökin

Samtals Safnað

0 kr.
0%

Markmið

250.000 kr.

Ákjósanleg greiðsluleið

Mastercard

Ég hef séð hana hlæja, hjóla, njóta lífsins og sýna ótrúlegan styrk. En ég hef líka séð hana lamast, fá erfið köst og takast á við áskoranir sem ekkert barn ætti að þurfa að upplifa.

Sem mamma er maður svo oft hjálparlaus. Maður myndi gera allt til að taka sjúkdóminn af barninu sínu.

Þess vegna ætla ég að hlaupa 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu.

Ég hleyp fyrir Sunnu. Ég hleyp fyrir allar fjölskyldur sem lifa með AHC. Og ég hleyp vegna þess að ég trúi því að rannsóknir geti breytt framtíðinni.

Hvert skref sem ég tek er fullt af von. Von um betri meðferðir. Von um meiri skilning. Von um að einn daginn þurfi engin fjölskylda að ganga í gegnum það sem AHC-fjölskyldur ganga í gegnum í dag.

Ef þú hefur tök á því væri mér afar vænt um ef þú myndir heita á mig. Hvert framlag skiptir máli og hjálpar okkur að halda áfram baráttunni fyrir betri framtíð.

Takk fyrir að standa með okkur. 💜

AHC samtökin

AHC samtökin voru stofnuð árið 2009 í þeim tilgangi að finna meðferð við Alternating Hemiplegia of Childhood

Nýir styrkir

Stöðuþráður hlaupara

Engir styrkir hafa borist enn

Styrktaraðilar

  • Íslandsbanki
  • Corsa
  • 66 Norður
  • Gatorade
  • Holdur Car Rental Iceland