Hlauparar

Samtals Safnað
Markmið
Ákjósanleg greiðsluleið

Hæ. Ég heiti Sunna Valdís.
Í ágúst ætla ég að taka þátt í 10 km Reykjavíkurmaraþoninu.
Ég er með sjaldgæfan taugasjúkdóm sem heitir AHC. Það þýðir að lífið mitt er oft fullt af hindrunum sem aðrir sjá ekki. Það eru dagar sem ég get gert margt og dagar sem líkaminn minn leyfir mér nánast ekkert.
En ég gefst ekki upp.
Ég ætla að leggja mitt af mörkum og taka þátt í maraþoninu til styrktar AHC samtökunum. Mig dreymir um að vísindin finni betri meðferðir og einn daginn lækningu – ekki bara fyrir mig heldur öll börn og fullorðna sem lifa með AHC.
Ef þú getur, þá væri ég mjög þakklát ef þú myndir heita á mig eða hlauparana sem hlaupa með mér.
Takk fyrir að gefa okkur von. 💜
– Sunna Valdís
AHC samtökin
AHC samtökin voru stofnuð árið 2009 í þeim tilgangi að finna meðferð við Alternating Hemiplegia of Childhood
Nýir styrkir
Stöðuþráður hlaupara
Engir styrkir hafa borist enn












