Hlauparar

Samtals Safnað
Markmið
Ákjósanleg greiðsluleið
Ég ætla að hlaupa fyrir elsku, Magnús Mána frænda minn sem hefur lagt gríðarlega mikið á sig í endurhæfingu og náð góðum árangri.
Íslenska ríkið hefur tekið ákvörðun um að útvega ekki bestu mögulegu endurhæfingu fyrir fólk sem glímir við taugaraskanir og hefur fjölskyldan því þurft að leita erlendis til að fá bestu mögulegu endurhæfingu sem í boði er í heiminum í dag. Þrátt fyrir að það sé skylda ríkisins að útvega bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hefur ríkið aðeins af afar litlum hluta tekið þátt í kostnaðinum.
Magnús Máni hefur nú þegar dvalið í samtals 23 vikur í Madrid yfir eins og hálfs árs tímabil og munu bætast við rúmar 3 vikur í júlí 2026. Kostnaðurinn við hverja viku í Madrid er rúm ein milljón krónur þannig að í lok sumars verður kostnaður við Madrid kominn upp í tæpar 30 milljónir króna til viðbótar við annan kostnað. Ég hleyp þess vegna til að Magnús geti áfram notið bestu endurhæfingar sem völ er á.
Takk fyrir stuðninginn
Styrktarfélag Magnúsar Mána
Fjölskylda, vinir og allir þeir sem vilja ætla að hlaupa til styrktar endurhæfingu Magnúsar Mána.
Nýir styrkir












