Hlauparar

Benedikt Snær Magnússon
Hleypur fyrir Börn með krabbamein og er liðsmaður í Vinir Úlfars
Samtals Safnað
Markmið
Ákjósanleg greiðsluleið
Ég hleyp (eða labba) 10 km og tileinka því Úlfari Baldvini vini mínum sem hefur fengið erfitt lífsverkefni, en hann greindist með óskurðtækt krabbamein 6 ára gamall. En í þessu verkefni hefur hann sýnt ótrúlegan styrk og æðruleysi. Oft á tíðum meiri en maður sjálfur gæti sýnt. Hvert einasta skref sem ég mun taka af þessum 10 þúsund skrefum er tileinkað Úlfari Baldvin og er söfnunin tileinkuð styrktarfélaginu börn með krabbamein.
Börn með krabbamein
Börn með krabbamein, styrktarfélag var stofnað 1991 af foreldrum barna með krabbamein en árlega greinast 12-14 börn með krabbamein á Íslandi. Tilgangur félagsins er að styðja krabbameinssjúk börn og aðstandendur og gæta hagsmuna þeirra á öllum sviðum. Það sinnir fræðslu- og útgáfustarfsemi um sérstöðu og þarfir krabbameinsveikra barna og um síðbúnar afleiðingar eftir krabbameinsmeðferð. Hvatningarstöð félagsins er vestan við Olís-stöðina í Ánanaustum. Sjá viðburðinn: Hvatningarstöð SKB í Reykjavíkurmaraþoni https://www.facebook.com/events/1051078383502754
Nýir styrkir












