Hlauparar

Unnur Sveinsdóttir
Hleypur fyrir Alzheimersamtökin og er liðsmaður í Seiglan, virknimiðstöð Alzheimersamtakanna
Samtals Safnað
Markmið
Ákjósanleg greiðsluleið
Seiglan er einstakur staður sem hefur haft geysilega jákvæð áhrif á líf okkar. Hún hefur hjálpað manninum mínum ótrúlega mikið þá daga sem hann sækir þjónustuna og um leið gert okkur báðum ómetanlegt gagn. Fyrir fólk sem hefur nýlega greinst með heilabilun er Seiglan sannkölluð lífslína.
Við teljum okkur afar heppin að sjúkdómurinn hafi þróast hægt. Það hefur gefið okkur tækifæri til að halda áfram að njóta lífsins, ferðast og gera allt það sem okkur langar til. Stuðningurinn sem við höfum fengið hefur skipt sköpum og því viljum við leggja okkar af mörkum svo þetta mikilvæga úrræði geti haldið áfram að vaxa og dafna.
Heilabilun mun á einhverjum tímapunkti snerta nærri hverja einustu fjölskyldu á Íslandi. Þess vegna skiptir máli að standa vörð um þjónustu eins og Seigluna – þjónustu sem veitir von, stuðning og lífsgæði þegar mest á reynir.
Alzheimersamtökin
Ætlar þú að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu? Við höfum fengið ómetanlegan styrk í gegnum árin frá hlaupurum á öllum aldri. Þú getur styrkt okkur með þínu hlaupi í ágúst.
Nýir styrkir
Stöðuþráður hlaupara
Engir styrkir hafa borist enn












