Hlauparar

Atli Gunnar Guðmundsson
Hleypur fyrir Barnaspítalasjóður Hringsins, Vökudeild, Hringurinn
Samtals Safnað
Markmið
Ákjósanleg greiðsluleið
Ég ætla að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu og hlaupa til styrktar Barnaspítala Hringsins. Síðastliðið sumar greindist dóttir okkar með flogaveiki og í kjölfarið fylgdu ótrúlega krefjandi mánuðir og nýr veruleiki fyrir okkur fjölskylduna.
Á þessum erfiðu tímum tók starfsfólk Barnaspítalans einstaklega vel á móti okkur í öll þau skipti sem við þurftum á innlögn að halda.
Okkur langar sérstaklega að nefna hana Hrönn á leikstofunni. Hún er einstakur gleðigjafi sem tekst að færa börnunum gleði og hamingju inn í spítalaumhverfið þegar þau þurfa mest á því að halda.
Með því að hlaupa vil ég sýna þakklæti okkar í verki og styrkja þetta mikilvæga starf svo spítalinn geti áfram hlúð sem best að veikum börnum og fjölskyldum þeirra. Hvert framlag telur!
Barnaspítalasjóður Hringsins, Vökudeild, Hringurinn
Hringurinn er kvenfélag, stofnað 1904. Félagið hefur að markmiði að vinna að líknar- og mannúðarmálum, sérstaklega í þágu barna.
Nýir styrkir












