Hlauparar

Samtals Safnað
Markmið
Ákjósanleg greiðsluleið
Í ár hleyp ég í Reykjavíkurmaraþoninu til styrktar Míu Magic. Dóttir mín, Ída, greindist nýlega með sykursýki týpu 1 og síðan þá höfum við verið að læra að takast á við nýjan veruleika. Á þeirri vegferð hefur Mía verið Ídu mikilvæg fyrirmynd og hjálpað henni að mæta þessari áskorun af hugrekki.
Mía Magic er góðgerðafélag sem hefur það að markmiði að styðja börn og fjölskyldur þeirra með hlýju og fræðslu sem hjálpar börnum að skilja og takast á við þær áskoranir sem langvinn veikindi geta fært.
Fyrir okkar fjölskyldu hefur þetta skipt miklu máli. Nýjasta bók Míu, sem fjallar um sykursýki, hefur reynst Ídu sérstaklega dýrmæt og hjálpað henni að takast á við greininguna með meiri skilningi og hugrekki.
Þess vegna langar mig að leggja mitt af mörkum með þessu hlaupi og styðja þetta ótrúlega mikilvæga starf. Öll framlög, stór sem smá, eru innilega vel þegin.
Mia Magic
Mia Magic er góðgerðarfélag sem stofnað var 1. febrúar 2021. Mia Magic einbeitir sér að því að gleðja langveik börn og foreldra þeirra ásamt því að gefa út fræðslubækur, bókin Mía fær lyfjabrunn, Mía fer í tívolí, Mía fer í blóðprufu & Mía lærir um sykursýki eftir þær Þórunni Evu og Bergrúnu Írisi hafa slegið í gegn og er á döfinni að gefa út fleiri bækur. Komdu í hlaupahópinn okkar ef þú ætlar að hlaupa fyrir Mia Magic! https://www.facebook.com/groups/707578163810779
Nýir styrkir












