Hlaupastyrkur

Hlauparar

Hálfmaraþon - Almenn skráning

Ívar Máni Hrannarsson

Hleypur fyrir Reykjadalur

Samtals Safnað

0 kr.
0%

Markmið

100.000 kr.

Ákjósanleg greiðsluleið

Mastercard

Ég hljóp 10km seinast og náði að safna yfir 50.000kr. Nú er ég að hlaupa tvöfalda vegalengd og ætla því að stefna á tvöföldun í söfnun fyrir Gló Reykjadal! Þau eru að safna sér fyrir nýjum matsal þar sem aðstaðan þar er ekki nógu góð. Þetta eru frábær samtök og því bið ég alla að hjálpa til ef þau geta.

Reykjadalur

Gló stuðningsfélag hefur rekið sumarbúðir í Reykjadal í Mosfellsdal frá árinu 1963. Markmið okkar er að bjóða upp á fjölbreytt tómstundartækifæri þar sem börn og ungmenni fá að njóta sín á eigin forsendum. Vinátta og gleði er mikilvægur þáttur í starfseminni þar sem áhersla er lögð á að öll geti eignast vini og séu fremst á meðal jafningja. Boðið er upp á sumar- og helgardvalir fyrir fötluð börn og ungmenni í Mosfellsdal allt árið um kring. Auk þess er boðið upp á Ævintýrabúðir fyrir börn með ADHD, einhverfu og andlegar áskoranir og fjölbreytta samveru og jafningastuðning fyrir ungt fatlað fólk og fjölskyldur þeirra. Alls nýta sér um 400 börn og ungmenni úrræði á vegum Gló Reykjadals ár hvert.

Nýir styrkir

Stöðuþráður hlaupara

Engir styrkir hafa borist enn

Styrktaraðilar

  • Íslandsbanki
  • Corsa
  • 66 Norður
  • Gatorade
  • Holdur Car Rental Iceland