Hlauparar

Kristín Sara Arnardóttir
Hleypur fyrir Styrktarfélag Magnúsar Mána og er liðsmaður í EdithGuðrúnKristínLilja
Samtals Safnað
Markmið
takk fyrir stuðninginn!

Við vinkonurnar ætlum að taka þátt í skemmtiskokkinu og leggja okkar að mörkum til að safna fyrir endurhæfingu Magnúsar Mána <3
Sumarið 2023 lenti hann í erfiðum veikindum, missti mátt og skynjun frá bringu og niður. Síðan þá hefur hann verið í mjög stífri og krefjandi endurhæfingu, marga klukkutíma á dag, mun meira en flest íþróttafólk gerir.
Magnús Máni hefur æft fótbolta með Breiðablik síðan hann var lítill og m.a. þaðan hefur hann þann mikla dugnað, seiglu, þolinmæði, þrautseigju og styrk til að takast á við þetta krefjandi verkefni.
Magnús Máni hefur þrisvar sinnum farið erlendis og dvalið í margar vikur í senn við endurhæfingu. Sjúkratryggingar Íslands taka einungis að mjög litlum hluta þátt í kostnaðinum við endurhæfinguna og þess vegna viljum við leggja okkar af mörkum.
Okkur langar að styðja hann í baráttunni með því að hlaupa fyrir hann og vonum að sem flestir sjái sér fært um að heita á okkur, margt smátt gerir eitt stórt.
Áfram Magnús Máni !
Styrktarfélag Magnúsar Mána
Fjölskylda, vinir og þeir sem vilja ætla að hlaupa til styrktar endurhæfingu Magnúsar Mána.
Nýir styrkir