Hlaupastyrkur

Hlauparar

10 km - Almenn skráning

Jörundur Elí Björnsson

Hleypur fyrir Styrktarfélag Magnúsar Mána

Samtals Safnað

158.000 kr.
Söfnuninni er lokið,
takk fyrir stuðninginn!

Ég ætla að hlaupa 10 km þann 23. ágúst fyrir vin minn Magnús Mána. Magnús Máni er 15 ára íþróttastrákur sem veiktist alvarlega  í kjölfar stuttra veikinda sumarið 2023. Magnús hafði verið með háan hita af og til í 2-3 vikur, hálsbólgu og hósta en ekkert athugavert kom í ljós í læknisskoðun viku áður en hann missti skyndilega máttinn og alla skynjun frá bringu og niður. Bakteríusýking hafði náð alla leið inn í mænuna og ollið þar bólgu með þessum alvarlegu afleiðingum.

Frá því í september 2023 hefur hann verið í gríðarlega mikilli og krefjandi endurhæfingu. Markmið hans frá upphafi hefur verið að ná sér að fullu, það markmið hefur ekkert breyst og hefur náðst mikill og góður árangur enda er Magnús Máni með ótrúlegan viljastyrk, þolinmæði og seiglu.

Því miður hefur íslenska heilbrigðiskerfið ekki upp á að bjóða bestu aðstöðu og þjónustu hvað varðar endurhæfingu til að hann geti náð sínu markmiði, þ.e. að ná sér að fullu. Ekki eru til nýjustu tæki og tól sem eru notuð í þeirri endurhæfingu sem hann þarf á að halda. Ekki var í boði sá mikli tími sem hann þarf í endurhæfingu á dag til að ná sínu markmiði og að sama skapi var nauðsynleg hvatning og trúí þeirri endurhæfingu sem í boði var ekki til staðar.

Vegna þessa hefur fjölskylda hans þurft að leita til erlendra aðila og farið erlendis með tilheyrandi raski á fjölskyldulífið til að ná þeim árangri sem Magnús hefur náð í dag. Jafnframt hefur þessu fylgt mikill kostnaður. Magnús Máni er farinn að ganga með göngugrind og á enn eftir töluverða vinnu til að ná fullum bata. Þátttaka Sjúkratrygginga Íslands er því miður aðeins lítið brot af þeim mikla kostnaði við þessa endurhæfingu Magnúsar og þess vegna ætlum við, fjölskyldan, vinir og aðrir að hlaupa fyrir Magnús í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 23. ágúst 2025 nk. og safna fyrir

Styrktarfélag Magnúsar Mána

Fjölskylda, vinir og þeir sem vilja ætla að hlaupa til styrktar endurhæfingu Magnúsar Mána.

Nýir styrkir

Stöðuþráður hlaupara

Anna Dögg Sigurjónsdóttir
Upphæð5.000 kr.
Heggjaður
Lísbet Ósk Karlsdóttir
Upphæð2.000 kr.
Áfram Jörundur og Bogga 💪
Bryndís Björk Barkardóttir Barkardóttir
Upphæð2.000 kr.
Àfram Jörundur fyrir Magnús Mána
Bergdís Eysteinsdóttir
Upphæð5.000 kr.
Áfram þið👏🏻🥰
Amma Nína
Upphæð5.000 kr.
Flottastur
Sigurjón Elmar
Upphæð5.000 kr.
Engin skilaboð
Upphæð100.000 kr.
Engin skilaboð
Björn Óli
Upphæð10.000 kr.
Engin skilaboð
Jón Kormákur
Upphæð5.000 kr.
Áfram Jörundur
Mamma
Upphæð10.000 kr.
Duglegastur
Hildur Inga Ros Inga Ros Guðmundsdóttir
Upphæð1.000 kr.
áfram þið!
Amma Edda
Upphæð5.000 kr.
Áfram Jörundur
Sigrún Steinsdóttir
Upphæð3.000 kr.
Áfram Bogga og Jörundur

Styrktaraðilar

  • Íslandsbanki
  • Corsa
  • Suzuki
  • 66 Norður
  • Gatorade