Hlaupastyrkur

Hlauparar

Hálfmaraþon - Almenn skráning

Áslaug Sól Sigurðardóttir

Hleypur fyrir Styrktarfélag Magnúsar Mána

Samtals Safnað

70.000 kr.
70%

Markmið

100.000 kr.
Söfnuninni er lokið,
takk fyrir stuðninginn!

Ég ætla að hlaupa hálfmaraþon í Reykjavíkurmaraþoninu fyrir Magnús Mána. 

Magnús Máni er 15 ára íþróttastrákur sem veiktist alvarlega í kjölfar stuttra veikinda sumarið 2023. Magnús hafði verið með háan hita af og til í 2-3 vikur, hálsbólgu og hósta en ekkert athugavert kom í ljós í læknisskoðun viku áður en hann missti skyndilega máttinn og alla skynjun frá bringu og niður. Bakteríusýking hafði náð alla leið inn í mænuna og ollið þar bólgu með þessum alvarlegu afleiðingum. Frá því í september 2023 hefur hann verið í gríðarlega mikilli og krefjandi endurhæfingu. Markmið hans frá upphafi hefur verið að ná sér að fullu, það markmið hefur ekkert breyst og hefur náðst mikill og góður árangur enda er Magnús Máni með ótrúlegan viljastyrk, þolinmæði og seiglu.

Því miður hefur íslenska heilbrigðiskerfið ekki upp á að bjóða bestu aðstöðu og þjónustu hvað varðar endurhæfingu til að hann geti náð sínu markmiði, þ.e. að ná sér að fullu. Ekki eru til nýjustu tæki og tól sem eru notuð í þeirri endurhæfingu sem hann þarf á að halda. Ekki er í boði sá mikli tími dag hvern sem hann þarf í endurhæfingu, til að ná sínu markmiði og að sama skapi í tilfelli Magnúsar var nauðsynleg hvatning og trú í þeirri endurhæfingu sem í boði var hér á Íslandi ekki til staðar.

Vegna þessa hefur fjölskyldan þurft að leita til erlendra aðila og farið erlendis með tilheyrandi raski á fjölskyldulífið til að ná þeim árangri sem Magnús hefur náð í dag. Jafnframt hefur þessu fylgt mikill kostnaður. Magnús Máni er farinn að ganga með göngugrind og á enn eftir töluverða vinnu til að ná fullum bata. Til viðbótar erlendu aðilunum fengu þau til liðs við sig frábæra íslenska sjúkraþjálfara sem hafa reynst okkur gríðarlega vel.

Magnús Máni hefur tvisvar farið erlendis í lengri tíma og mun fara aftur í sumar. Í janúar á þessu ári fór hann til Madrídar í 10 vikur á endurhæfingarstöð með allri nýjustu tækni, nálgun og hvatningu við endurhæfingu sem því miður er ekki í boði í opinbera kerfinu á Íslandi. Þátttaka Sjúkratrygginga Íslands er því miður aðeins lítið brot af þeim mikla kostnaði við þessa endurhæfingu Magnúsar

Áfram Magnús Máni!

Styrktarfélag Magnúsar Mána

Fjölskylda, vinir og þeir sem vilja ætla að hlaupa til styrktar endurhæfingu Magnúsar Mána.

Nýir styrkir

Stöðuþráður hlaupara

Linda frænka
Upphæð1.500 kr.
Vel gert hjá þér
Aron
Upphæð2.000 kr.
💪
Valgerður Bjarnadóttir
Upphæð2.000 kr.
Engin skilaboð
Þórhildur Birgisdóttir
Upphæð2.500 kr.
Engin skilaboð
Anna María Sveinbjörnsdóttir
Upphæð5.000 kr.
Engin skilaboð
Ingvar Björn Ólafsson
Upphæð5.000 kr.
Engin skilaboð
Áslaug Sigurðardóttir Sigurðardóttir
Upphæð10.000 kr.
Engin skilaboð
Hulda Maggý Gunnarsdóttir
Upphæð5.000 kr.
☀️
Sigridur Mekkinosson
Upphæð10.000 kr.
❤️
Anna Björk
Upphæð10.000 kr.
Frábært Áslaug. Óska Magnúsi Mána góðs bata 🥰
Natalia Ravva
Upphæð5.000 kr.
Gangi þér vel elskan
Brynhildur Steindórsdóttir
Upphæð2.000 kr.
Vel gert 👏
Sóley
Upphæð5.000 kr.
Vel gert Áslaug Sól!
Jenný Rósa Baldursdóttir
Upphæð5.000 kr.
Gangi þér vel 💪

Styrktaraðilar

  • Íslandsbanki
  • Corsa
  • 66 Norður
  • Gatorade
  • Holdur Car Rental Iceland