Hlaupastyrkur

Hlauparar

10 km - Almenn skráning

Harpa Halldórsdóttir

Hleypur fyrir Styrktarfélag Magnúsar Mána

Samtals Safnað

179.015 kr.
Söfnuninni er lokið,
takk fyrir stuðninginn!

Ég ætla að hlaupa 10 km þann 23 ágúst fyrir vin minn Magnús Mána. Magnús Máni er 15 ára íþróttastrákur sem veiktist alvarlega  í kjölfar stuttra veikinda sumarið 2023. Magnús hafði verið með háan hita af og til í 2-3 vikur, hálsbólgu og hósta en ekkert athugavert kom í ljós í læknisskoðun viku áður en hann missti skyndilega máttinn og alla skynjun frá bringu og niður. Bakteríusýking hafði náð alla leið inn í mænuna og ollið þar bólgu með þessum alvarlegu afleiðingum.

Frá því í september 2023 hefur hann verið í gríðarlega mikilli og krefjandi endurhæfingu. Markmið hans frá upphafi hefur verið að ná sér að fullu, það markmið hefur ekkert breyst og hefur náðst mikill og góður árangur enda er Magnús Máni með ótrúlegan viljastyrk, þolinmæði og seiglu.

Því miður hefur íslenska heilbrigðiskerfið ekki upp á að bjóða bestu aðstöðu og þjónustu hvað varðar endurhæfingu til að hann geti náð sínu markmiði, þ.e. að ná sér að fullu. Ekki eru til nýjustu tæki og tól sem eru notuð í þeirri endurhæfingu sem hann þarf á að halda. Ekki var í boði sá mikli tími sem hann þarf í endurhæfingu á dag til að ná sínu markmiði og að sama skapi var nauðsynleg hvatning og trúí þeirri endurhæfingu sem í boði var ekki til staðar.

Vegna þessa hefur fjölskylda hans þurft að leita til erlendra aðila og farið erlendis með tilheyrandi raski á fjölskyldulífið til að ná þeim árangri sem Magnús hefur náð í dag. Jafnframt hefur þessu fylgt mikill kostnaður. Magnús Máni er farinn að ganga með göngugrind og á enn eftir töluverða vinnu til að ná fullum bata. Þátttaka Sjúkratrygginga Íslands er því miður aðeins lítið brot af þeim mikla kostnaði við þessa endurhæfingu Magnúsar og þess vegna ætlum við, fjölskyldan, vinir og aðrir að hlaupa fyrir Magnús í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 23. ágúst 2025 nk. og safna fyrir endurhæfingunni

Styrktarfélag Magnúsar Mána

Fjölskylda, vinir og þeir sem vilja ætla að hlaupa til styrktar endurhæfingu Magnúsar Mána.

Nýir styrkir

Stöðuþráður hlaupara

Vilborg
Upphæð2.000 kr.
Áfram þú 👏🏻
Martha Sigurðardóttir
Upphæð5.000 kr.
Engin skilaboð
Hlynur
Upphæð10.000 kr.
Engin skilaboð
Dagný og Andri
Upphæð5.000 kr.
Áfram þú 😘
Rakel Björk
Upphæð5.000 kr.
Engin skilaboð
Bogga
Upphæð2.000 kr.
Áfram þú👏
Herdís Hermannsdóttir
Upphæð2.000 kr.
Engin skilaboð
Biggi
Upphæð5.000 kr.
Áfram svo 😍 kem að hvetja þig
Upphæð25.000 kr.
Engin skilaboð
Inga Birna Barkardóttir
Upphæð10.000 kr.
Flottust! Áfram Magnús Máni
Fríða Hrönn
Upphæð2.000 kr.
Gangi þér vel
Upphæð2.000 kr.
Engin skilaboð
Sigríður H Sigmarsdóttir
Upphæð3.000 kr.
Þú ert alltaf svo flott fyrirmynd ❤️
Jón Árnason
Upphæð25.000 kr.
Engin skilaboð
Steini Þorvaldsson
Upphæð15.000 kr.
Steini Þorvaldsson
Gunnhildur Sveinsdóttir
Upphæð15.000 kr.
Engin skilaboð
Gunnhildur Sveinsdóttir
Upphæð15 kr.
Engin skilaboð
Stefán Ingi Þórisson
Upphæð10.000 kr.
Engin skilaboð
Gunnhildur Sveinsdóttir
Upphæð5.000 kr.
Engin skilaboð
Upphæð15.000 kr.
Engin skilaboð
Skólavinir Magnúsar
Upphæð10.000 kr.
Ánægð með þetta framtak - áfram Magnús!
Hafdís
Upphæð1.000 kr.
You go girl
Upphæð5.000 kr.
Áfram Magnús Máni!

Styrktaraðilar

  • Íslandsbanki
  • Corsa
  • Suzuki
  • 66 Norður
  • Gatorade