Hlauparar

Karitas Rán Garðarsdóttir
Hleypur fyrir Örninn - Minningar og styrktarsjóður
Samtals Safnað
Markmið
Ákjósanleg greiðsluleið
Ég hleyp fyrir Örninn, félag sem styður við börn og unglinga sem misst hafa foreldri eða annan náinn ástvin.
Sumarið 2024 markaði mikil áföll í tengdafjölskyldu minni þegar mágkona mín missti yngsta son sinn úr skyndilegum veikindum snemma sumars, en eiginmaður hennar lést af slysförum síðla sama sumar. Það eru engin orð sem ná yfir þann missi sem mágkona mín og barnungir synir hennar hafa gengið í gegnum, en Örninn hefur reynst þeim vel í sorgarferlinu. Því langar mig til að styðja við þetta góða starf.
Örninn vinnur dýrmætt starf fyrir börn sem misst hafa foreldri, systkini og/eða annan náinn ástvin, og eiga því einstaklega sárt um að binda. Starfið er þátttakendum að kostnaðarlausu en samtökin reiða sig á styrki auk þess sem allir starfsmenn eru sjálfboðaliðar. Ef þú vilt styðja við málefnið, þá yrði ég gífurlega þakklát fyrir hvern styrk. Margt smátt gerir eitt stórt.
Örninn - Minningar og styrktarsjóður
Örninn styður börn og unglinga á aldrinum 9 til 17 ára sem hafa misst foreldri eða annan náin ástvin. Félagið býður upp á helgardvöl og mánaðarlegar samverur fyrir börn í sorg. Þar vinnum við sorgarúrvinnslu, fáum fræðslu um ýmislegt tengt áföllum og missi ásamt því að hafa gaman saman og njóta lífsins. Samverurnar eru þátttakendum að kostnaðarlausu en verkefnið reiðir sig á styrki auk þess sem allir starfsmenn eru sjálfboðaliðar.
Nýir styrkir