Hlauparar

Samtals Safnað
Markmið
takk fyrir stuðninginn!
Ég ætla að rúlla 21km og reyna um leið að safna einhverjum aurum fyrir Neistann. Neistinn reyndist okkur ótrúlega vel - en yngri strákurinn okkar, Hrafn, fæddist með hjartagalla. Strax frá því að gallinn greindists í 20 vikna fósturhjartaómun - gripu bæði Hjartateymið á Barnaspítalanum og Neistinn okkur hratt og vel.
Krummi fæddist með stóran VSD og sýndi frá fyrsta degi töluverð hjartabilunar einkenni sem jukust síðan jafnt og þétt. Hann fór í eftirlit 2-3 í viku, hjartaómanir, sondu uppsettningar og næringabætingar, vigtanir, endurmat á lyfjum og svo framvegis og framvegis. Krummi fór svo 2 mánaða í aðgerð í Lundi í Svíþjóð þar sem við dvöldum í 3 vikur. Neistinn hjálpaði okkur og styrkti í kringum ferðina - og mig langar að hjálpa þeim sem hjápuðu okkur. Neistanum, Hjartateyminu á Barnaspítalanum - hjúkrunarfræðingnum sem fer fyrir því, sem var okkur ómetanleg stoð og stytta í ótal mörgum spítalaheimsóknum fram að aðgerð og auðvitað hjartalæknunum okkar tveimur verðum við ævinlega þakklát.
Neistinn, styrktarfélag hjartveikra barna
Markmið Neistans er m.a. að auðvelda aðgengi foreldra að upplýsingum sem snúa að hjartagöllum og hjartasjúkdómum barna og um meðferð þeirra. Þá sinnir Neistinn réttindum fjölskyldunnar og tilfinningalegum þörfum hennar, t.d. á upplýsingavef sínum, hjartagáttin.neistinn.is. Neistinn heldur úti öflugu félagslífi, fjölskyldum hjartabarna til skemmtunar og stuðnings og unglingastarfið þykir einkar líflegt. Þá stendur Neistinn að baki Styrktarsjóði Neistans, sem styrkir hjartafjölskyldur fjárhagslega.
Nýir styrkir












