Hlaupastyrkur

Góðgerðarmál

Áfangaheimilið Óla hús

Samtals Safnað

60.000 kr.

Fjöldi áheita

13

Áfangaheimilið Óla hús er búsetu- og eftirmeðferðarúrræði fyrir karla sem eru að stíga sín fyrstu skref í átt að bata frá fíknisjúkdómi. Markmið starfseminnar er að veita öruggt, stöðugt og uppbyggilegt umhverfi þar sem íbúar geta unnið markvisst að bata sínum og byggt upp grunn að heilbrigðara og sjálfstæðara lífi. Á Óla húsi eru níu pláss og er hverjum íbúa veitt einstaklingsmiðuð aðstoð og stuðningur sem tekur mið af þörfum hans og stöðu í bataferlinu. Lögð er áhersla á ábyrgð, reglufestu, jákvæð samskipti og uppbyggingu heilbrigðra lífshátta sem styðja við varanlegan bata. Íbúar fá tækifæri til að efla sjálfstraust sitt, þróa með sér gagnleg verkfæri til að takast á við áskoranir daglegs lífs og styrkja félagslega færni sína. Með samvinnu, virðingu og faglegum stuðningi er leitast við að skapa aðstæður sem hámarka líkurnar á árangursríkum bata og farsælli aðlögun að samfélaginu. Óla hús gegnir þannig mikilvægu hlutverki sem brú á milli meðferðar og sjálfstæðrar búsetu, þar sem einstaklingar fá tækifæri til að styrkja grunninn að nýju og betra lífi án fíknar.

Einstaklingar sem safna fyrir félagið

Runner
Hálfmaraþon - Keppnisflokkur

Sigfús Gunnar Ágústsson

Hefur safnað 60.000 kr. fyrir
Áfangaheimilið Óla hús
6% af markmiði

Nýir styrkir

Stöðuþráður hlaupara

Kristín Ósk Óskarsdóttir
Upphæð2.000 kr.
Held með þér elsku vinur og skólabróðir! 😊
Áfram Siffi og áfram Ólahús
Upphæð20.000 kr.
Engin skilaboð
Orri Valgeirsson
Upphæð2.000 kr.
Engin skilaboð
Betsý Ág
Upphæð5.000 kr.
Gangi þér vel!
Birgitta Petursdottir
Upphæð5.000 kr.
Engin skilaboð
Bjarki
Upphæð5.000 kr.
Hrikalega vel gert elsku vinur! Áfram Siffi!
Halla Júlía Andersen
Upphæð1.000 kr.
Engin skilaboð
Júlíus Eyvindsson
Upphæð1.000 kr.
Engin skilaboð
Framheilinn
Upphæð10.000 kr.
LFG!
PéÓ
Upphæð5.000 kr.
Gangi þér vel vinur!
Arnar Bjarki
Upphæð1.000 kr.
Engin skilaboð
Oddný Gestsdóttir
Upphæð2.000 kr.
Engin skilaboð
Upphæð1.000 kr.
Engin skilaboð

Styrktaraðilar

  • Íslandsbanki
  • Corsa
  • 66 Norður
  • Gatorade
  • Holdur Car Rental Iceland