Við hlaupum fyrir Jenný Lilju og söfnum áheitum fyrir Landsbjörgu.
Jenný Lilja var nemandi í Plié listdansskóla og er tvíburasystir hennar mikið Plié barn.
Í ár ætlar Minningarsjóður Jennýjar Lilju að safna áheitum í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka sem fer fram 22.ágúst nk. Áheitin renna í nýstofnaðan sjóð sem Slysavarnarfélagið Landsbjörg sér um að annast. Tilgangur sjóðsins er að meðlimir björgunarsveita á öllu landinu, geti sótt sér aðstoð fagfólks eða sálgæslu eftir erfið útköll eða upplifanir í útköllum.
Hver sem er getur heitið á þá sem hlaupa fyrir góð málefni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka upphæð að eigin vali. Þannig er hægt að hvetja hlauparana til dáða og láta jafnframt gott af sér leiða.