
Þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka hlaupa um götur Reykjavíkur. Góða staði til að hvetja hlaupara má sjá á kortinu og í töflunni hér fyrir neðan.
Hvatningarstöðvar góðgerðafélaga
Þau góðgerðafélög sem eru að safna áheitum á hlaupastyrkur.is, eru mörg með hvatningarstöð á leiðinni. Smelltu hér til að skoða staðsetningu góðgerðafélaga á hlaupaleiðinni. Uppfært kort fyrir árið í ár kemur þegar nær dregur hlaupi.
Hvatningarstöðvar fyrirtækja
Fyrirtæki sem vilja vera með hvatningarstöð í hlaupinu þurfa að hafa samband við [email protected] til að fá leyfi.
Góðir hvatningarstaðir
Hér fyrir neðan má sjá áætlaðar tímasetningar þegar hlauparar fara framhjá góðum hvatningarstöðum. Smá klapp eða uppörvandi hrós getur veitt ótrúlega mikinn auka kraft í átökunum. Komdu út að hvetja!

Loading...
Staðsetning þar sem flestir hlaupa
km
Maraþon
Hálfmaraþon
10 km
Norðurströnd við Bollagarða
5 km
8:30-11:10
8:30-11:10
8:30-11:10
Grandagarður
9 km
8:20-12:00
8:20-12:00
8:20-12:00
Aðalstræti við Ingólfstorg
10 km
8:45-10:50
8:45-10:50
Sæbraut við Kleppsveg
16,4 km
9:10-12:15
9:10-12:15
Snorrabraut við Miklubraut
21,1 km
9:25-12:00
Sólarleið við Fossvogsveg
24,5 km
9:35-12:35
Sólarleið við Reykjanesbraut
27,4
9:45-13:05
Sævarhöfði við Elliðavog
29,9
9:55-13:40
Rafstöðvarvegur
32 km
10:00-14:05
Sæbraut við Kleppsveg
38
10:20-14:50












