Krýsuvíkur samtökin voru stofnuð 24. apríl 1986, og eru því 34 ára á árinu, þau eru samtök einstaklinga og fyrirtækja sem hafa það að markmiði, að starfrækja Meðferðarheimilið í Krýsuvík, til hjálpar þeim einstaklingum, sem ánetjast hafa vímuefnum og misst stjórn á lífi sínu. Megin áherslan er hjálp til sjálfshjálpar fyrir vímuefnaneytendur. Krýsuvíkursamtökinn eru meðlimur í European Federation of Therapeutic Communities. Allir ráðgjafar hjá Meðferðarheimilinu eru með alþjóðleg IC&RC réttindi í vímuefnaráðgjöf á sviði fíknisjúkdóma. Það er fyrir tilstuðlan félaga og fyrirtækja í samtökunum að Krýsuvík gengur, öll framlög hafa í gegnum árin gert það að verkum að Meðferðarheimilið Krýsuvík er enn til staðar fyrir vímuefnaneytendur. Nánari upplýsingar eru að finna á www.krysuvik.is og https://www.facebook.com/medferdarheimilid.krysuvik/?fref=ts