Árlega greinast að meðaltali um 1.600 íslendingar með krabbamein. Einn af hverjum þremur fær krabbamein einhvern tímann á lífsleiðinni. Krabbameinsfélagið er í fararbroddi í baráttunni gegn krabbameini. Markmið okkar eru að:
- Fækka þeim sem greinast
- Fjölga þeim sem lifa
- og bæta lífsgæði þeirra sem greinast og lifa með krabbamein
Við vinnum að þessum markmiðum á hverjum degi með kraftmiklu fræðslu- og forvarnarstarfi, vísindarannsóknum, stuðningi og ráðgjöf við sjúklinga og aðstandendur og skipulegri leit að brjósta-og leghálskrabbameini á Leitarstöð Krabbameinsfélagsins.
Við færum öllum hlaupurum sem leggja félaginu lið innilegar þakkir fyrir veittan stuðning og velvild í garð félagsins.
Kynntu þér starf okkar á www.krabb.is eða hafðu samband á krabb@krabb.is
Við hvetjum hlaupara sem hlaupa fyrir Krabbameinsfélagið til að líta við á básnum okkar á skráningarhátíðinni í Laugardalshöllinni.
Við þökkum velvild og stuðning og óskum öllum hlaupurum góðs gengis.
Starfsfólk Krabbameinsfélagsins