
Einhverfusamtökin voru stofnuð 1977. Í samtökunum er fólk á einhverfurófi, foreldrar, fagfólk og aðrir sem áhuga hafa á velferð og málefnum fólks á einhverfurófi. Félagsmenn eru nú um 800. Starfandi eru frístundahópar fyrir unglinga og stuðningshópar fyrir fullorðna bæði á Höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Einnig eru starfandi stuðningshópar fyrir foreldra. Samtökin hafa lagt ríka áherslu á hagsmunagæslu, fræðslu- og kynningarstarfsemi. Helstu baráttumálin eru styttri biðlistar eftir greiningu, aukin atvinnutækifæri og fleiri búsetuúrræði. Einhverfusamtökin eru með skrifstofu í Reykjavík. Heimasíða Einhverfusamtakanna er www.einhverfa.is .