Þjóðminjasafn Íslands Suðurgötu 41 verður opið fyrir hlaupara Reykjarvíkurmaraþonsins frá kl. 7:30. Hlaupurum og aðstandendum býðst að nýta sér salernisaðstöðu og læstar hirslur, meðan pláss leyfir, sér að kostnaðarlausu. Á milli kl. 12 og 17 býðst þeim og öðrum gestum að taka þátt í lifandi fjölskyldudagskrá sem samanstendur af spennandi víkingahátíð, söngstund og leiðsögn. Enginn aðgangseyrir er í safnið á Menningarnótt.
Nánari upplýsingar um dagskrá Þjóðminjasafnsins:
Kl. 12:00 – Víkingaleikir
Kl. 13:00 – Vopnaskak
Kl. 13:30 – Söngstund í fjölskyldurými
Kl. 14:00 – Sögustund og Hringdans
Kl. 15:00 – Sérfræðileiðsögn um sýninguna „Með sögu í farangrinum - Brúðarbúningurinn"
Kl. 15:00 – Vopnaskak
Kl. 16:00 – Víkingaleikir
Kl. 17:00 – Kveðjuathöfn, dagskrá lýkur
Aðrar fréttir
Archive- 22. ágúst 2026
16.000 hlauparar
Frábær aðsókn var í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fór fram í dag. Það skiptist á skini og skúrum en aðallega skúrum en glaðir hlauparar létu ekki rigninguna á sig fá. Skráðir þátttakendur í dag voru rúmlega 16.000, þar af rúmlega 3.000 erlendir hlauparar frá yfir 90 mismunandi þjóðlöndum. Gríðarlega mikil stemning var í miðbænum og fögnuðu áhorfendur vel og mikið fyrir þreyttum hlaupurum sem komu í mark.
- 19. ágúst 2026

Við verðum í beinni í ár!
Hlaupið verður sýnt í Sjónvarpi Símans sem og á YouTube stöð hlaupsins.
- 28. júlí 2026

Kláraðu heilt maraþon á þínum forsendum
Markmiðið er að hvetja sem flesta til útivistar












