10 K - Competition

Gígja Eyjólfsdóttir

Supporting MND Iceland and is a member of Sif Rós - Styrkjum MND félagið á Íslandi

Total collected

16,000 kr.
53%

Goal

30,000 kr.

Preferred Payment Method

Mastercard

Síðasta haust setti ég mér markmið að byrja að hlaupa og læra að hafa gaman af því.

Frá því í september 2025 hef ég stundað útihlaup. Ég hef hlaupið í allskonar veðrum og meira að segja um allan heim. Eftir 40 ár get ég núna LOKSINS sagt að mér finnist í alvöru gaman að fara út að hlaupa.

Það er ekki sjálfgefið að geta farið út að hlaupa yfir höfuð og meðan ég er svo lánsöm að hafa heilsuna og getu til þess ætla ég að halda því áfram.

Eitt af markmiðunum sem ég setti mér líka þegar ég byrjaði var að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu, bæta tímann minn frá fyrri árum og um leið láta gott af mér leiða með því að hlaupa fyrir gott málefni.

Þegar ég sá að stofnaður hafði verið hlaupahópur í nafni Sifjar til styrktar MND-félaginu vissi ég strax að það væri málefni sem ég vildi styðja. MND er sjúkdómur sem getur svipt fólk getu sem flest okkar tökum sem sjálfsagðan hlut, þar á meðal getu til að hreyfa sig.

Ef þú hefur tök á því að heita á mig, stórt eða smátt, þá væri það mér og þessu mikilvæga málefni mikils virði. Hvert framlag skiptir máli.

MND Iceland

Hlutverk félagsins er að vinna að velferð þeirra sem haldnir eru MND hreyfitaugahrörnun, eða öðrum vöðva og taugasjúkdómum með sömu eða svipaðar afleiðingar. Einnig fjölskyldum þeirra og fagfólki sem vinnur að málefnum þessa hóps.

New pledges

Pledge history

Lilja Guðný Magnúsdóttir
Amount5,000 kr.
Áfram Gígja 💪🏽
Weronika Skibinska
Amount1,000 kr.
Áfram þú 👏👏👏👏👏
Ásta Andrésar
Amount5,000 kr.
Vel gert - stolt af hlaupaskvísunni 🙌
Mamma sín
Amount5,000 kr.
Stolt af þér “love you”

Styrktaraðilar

  • Íslandsbanki
  • Corsa
  • 66 Norður
  • Gatorade
  • Holdur Car Rental Iceland