Runners

Total collected
Goal
Preferred Payment Method
Í ár ætla ég að hlaupa 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu til styrktar MND samtökunum.
MND (hreyfitaugahrörnun) er alvarlegur taugasjúkdómur sem veldur því að hreyfitaugar í heila og mænu hrörna smám saman. Þrátt fyrir miklar framfarir í rannsóknum er enn engin lækning við MND. Þess vegna eru MND samtökin svo mikilvæg. Þau veita einstaklingum með MND og aðstandendum þeirra stuðning, fræðslu, ráðgjöf og samfélag á erfiðum tímum.
Fyrir ári síðan greindist pabbi minn með MND. Það er sjúkdómur sem hefur haft mikil áhrif á líf hans og okkar allra sem stöndum honum næst.
Engin upphæð er of lítil – hvert framlag skiptir máli💜
MND Iceland
Hlutverk félagsins er að vinna að velferð þeirra sem haldnir eru MND hreyfitaugahrörnun, eða öðrum vöðva og taugasjúkdómum með sömu eða svipaðar afleiðingar. Einnig fjölskyldum þeirra og fagfólki sem vinnur að málefnum þessa hóps.
New pledges













