Runners

Eva Þórðardóttir
Supporting SAA - National Center of Addiction Medicine
Total collected
Goal
Preferred Payment Method



Fyrir fjórum árum leitaði ég mér aðstoðar hjá SÁÁ. Sú ákvörðun breytti lífi mínu – ekki aðeins mínu heldur líka lífi fjölskyldunnar minnar.
Eftir meðferðina hefur hlaupið orðið stór hluti af lífi mínu. Það hefur styrkt mig, hjálpað mér að viðhalda edrúmennsku og minnt mig á að með þrautseigju og stuðningi er hægt að komast langt.
Þess vegna langar mig að gefa eitthvað til baka. Ég hleyp til styrktar SÁÁ í von um að sem flestir heiti á mig og styðji við það ómetanlega starf sem þar er unnið á hverjum degi.
Fíkn hefur áhrif á miklu fleiri en þann sem glímir við hana. Hún snertir fjölskyldur, vini og samfélagið allt. Flest okkar þekkjum einhvern sem hefur þurft á þessari hjálp að halda.
Hver króna skiptir máli og getur hjálpað öðrum að fá það tækifæri sem ég fékk – tækifæri til að byggja upp nýtt líf.
Takk fyrir allan stuðninginn. Saman getum við skipt máli. ❤️
SAA - National Center of Addiction Medicine
SÁÁ eru samtök sem styðja einstaklinga og fjölskyldur sem glíma við áfengis- og vímuefnavanda. Með því að styrkja SÁÁ styður þú mikilvæga meðferð, fræðslu og bata fyrir fjölda fólks á Íslandi á hverju ári.
New pledges













