Runners

Total collected
Goal
Preferred Payment Method


Ég hleyp af því ég get það!
Ég ætla að hlaupa heilt maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu til styrktar SÁÁ. Ég hef unnið á Vogi í rúmt ár og á þeim stutta tíma hef ég séð hversu mikil þrautseigja býr í þeim sem glíma við fíknisjúkdóm.
Ég hleyp fyrir þau sem ekki geta hlaupið. Ég hleyp fyrir þau sem misstu líf sitt of snemma. Ég hleyp fyrir þau sem hafa setið á móti mér og sagt mér frá því að þau vilji enda líf sitt. Ég hleyp fyrir sjúklingahópinn minn. Ég hleyp fyrir besta starfsfólk Vogs. Ég hleyp fyrir betra líf og von, því það er alltaf von.
Með þessu vil ég vekja athygli á alvarleika vandans, heiðra minningu þeirra sem fallið hafa frá og sýna stuðning við aðstandendur og samfélagið sem eftir stendur brotið. Sérhver kílómetri verður tileinkaður von um aukna samúð og skilning gagnvart þeim sem þurfa að fara í meðferð. Því allir eiga skilið heilbrigðisþjónustu, og allir eiga skilið að ná bata. Við mismunum ekki eftir sjúkdómum; sjúkdómur er sjúkdómur.
Ég set mér aldrei lítil markmið, og vonast til að ná að safna 1.000.000kr til styrktar SÁÁ. Ef þig langar að styðja við þessa mikilvægu og þörfu þjónustu getur þú gert það í gegnum hlekkinn hér að neðan. Ef þú getur ekki styrkt þakka ég þér kærlega fyrir að lesa allan textann. Vonandi tekuru eitthvað með þér út í lífið varðandi þennan hræðilega, illkvittna sjúkdóm.
Sjáumst 22 ágúst, hlaupum fyrir vonina🧡
SAA - National Center of Addiction Medicine
SÁÁ eru samtök sem styðja einstaklinga og fjölskyldur sem glíma við áfengis- og vímuefnavanda. Með því að styrkja SÁÁ styður þú mikilvæga meðferð, fræðslu og bata fyrir fjölda fólks á Íslandi á hverju ári.
New pledges













