10 K - General registration

Bríet Klara Björnsdóttir

Supporting Children with Cancer

Total collected

7,000 kr.
1%

Goal

500,000 kr.

Preferred Payment Method

Mastercard

Í ár hleypur Bríet Klara í Reykjavíkurmaraþoninu.

Fyrir rúmu ári síðan breyttist lífið okkar á einu augnabliki þegar Bríet greindist með krabbamein, aðeins 14 ára gömul. Síðan þá hefur hún gengið í gegnum aðgerðir, lyfjameðferðir, geislameðferðir, ótal rannsóknir, spítalainnlagnir og endalausa bið eftir niðurstöðum. Hún hefur misst af stórum stundum í lífi unglingsins, verið langt frá vinum sínum og þurft að takast á við hluti sem engin ung manneskja ætti að þurfa að upplifa.

Samt hefur hún mætt hverri áskorun af ótrúlegu hugrekki. Hún hefur kennt okkur sem í kringum hana erum hvað raunverulegur styrkur er. Á dögum sem voru þungir fann hún enn ástæðu til að brosa, hlæja og halda í vonina.

Þess vegna er svo sérstakt að sjá hana núna skrá sig í Reykjavíkurmaraþonið. Að sjá hana aftur á körfuboltavellinum, með vinum sínum og hlaupa inn í framtíðina með drauma og markmið. Það eru hlutir sem við munum aldrei aftur taka sem sjálfsagða.

Bríet hleypur til styrktar Börnum með krabbamein – styrktarfélagi. Félaginu sem studdi okkur á þeim tíma þegar við þurftum mest á því að halda og hjálpar fjölskyldum að takast á við eitt erfiðasta verkefni sem foreldrar geta staðið frammi fyrir.

Ef þú hefur tök á að heita á Bríeti yrðum við af öllu hjarta þakklát. Hvert framlag skiptir máli💗🥳

Children with Cancer

Börn með krabbamein, styrktarfélag var stofnað 1991 af foreldrum barna með krabbamein en árlega greinast 12-14 börn með krabbamein á Íslandi. Tilgangur félagsins er að styðja krabbameinssjúk börn og aðstandendur og gæta hagsmuna þeirra á öllum sviðum. Það sinnir fræðslu- og útgáfustarfsemi um sérstöðu og þarfir krabbameinsveikra barna og um síðbúnar afleiðingar eftir krabbameinsmeðferð. Hvatningarstöð félagsins er vestan við Olís-stöðina í Ánanaustum. Sjá viðburðinn: Hvatningarstöð SKB í Reykjavíkurmaraþoni https://www.facebook.com/events/1051078383502754

New pledges

Pledge history

Amount2,000 kr.
Elsku flotta og sæta Bríet💖 þú er hetja áfram þú, held þú verður með þeim bestum trúi ekki öðru 🥳 að sjá þig núna eftir þetta allt saman wow ótrúleg ég fæ gæsahúð knús og áfram þú sendi þér þúsund milljon strauma 🥳
Ragnhildur þorbjörg Svansdottir
Amount5,000 kr.
Áfram þú

Styrktaraðilar

  • Íslandsbanki
  • Corsa
  • 66 Norður
  • Gatorade
  • Holdur Car Rental Iceland