Runners

Total collected
Goal
Preferred Payment Method
Í ár hleyp ég í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka til styrktar Krabbameinsfélaginu.
Ástæða mín fyrir að velja krabbameinsfélagið er persónuleg. Fyrr á þessu ári lést tengdafaðir minn, Guðjón Viðar Valdimarsson, eftir að hafa greinst með krabbamein. Missir hans hafði mikil áhrif á fjölskyldu okkar og minnti okkur á hversu skyndilega krabbamein getur breytt lífi fólks og þeirra nánustu.
Með því að hlaupa fyrir Krabbameinsfélagið vil ég heiðra minningu Guðjóns og leggja mitt af mörkum. Krabbameinsfélagið vinnur mikilvægt starf við fræðslu, forvarnir, rannsóknir og stuðning við fólk sem greinist með krabbamein. Félagið hefur reynst mikilvægur stuðningur fjölskylduna á þessum erfiðu tímum.
Ég væri afar þakklátur fyrir stuðning við söfnunina. Hvert framlag skiptir máli og hjálpar til við að styrkja þetta mikilvæga starf.
The Icelandic Cancer Society
Krabbameinsfélagið er tryggur bakhjarl þegar krabbamein kollvarpar tilverunni. Starf félagsins byggist alfarið á stuðningi einstaklinga og fyrirtækja. Með þinni aðstoð getum við dregið úr áhrifum krabbameina á samfélagið með því að skapa þekkingu, berjast fyrir breytingum og veita fólki með krabbamein og aðstandendum þeirra stuðning og sérhæfða ráðgjöf fagfólks. Markmið félagsins er að færri fái krabbamein, fleiri læknist, lifi lengi og njóti lífsins með og eftir krabbamein. Með stuðningi þjóðarinnar höfum við helgað okkur baráttunni gegn krabbameinum í 75 ár og hvikum hvergi heldur höldum ótrauð áfram, með þér og fyrir þig. Því lífið liggur við.
New pledges
Pledge history
No pledges yet













