Runners

Gísli Garðarsson
Supporting Barnaspítalasjóður Hringsins, Vökudeild, Hringurinn
Total collected
Goal
Preferred Payment Method
Yngri dóttir okkar hjónanna kom mjög skyndilega í heiminn mánuði á undan áætlun. Við vorum ekki tilbúin og hún ekki heldur. Hún var með vot lungu, andaði ekki til að byrja með og þegar það loks tókst átti hún svo erfitt með að halda sér vakandi að hún gat ekki tekið brjóst án þess að sofna um leið og því ekki nærst af sjálfsdáðum.
Vökudeild Barnaspítala Hringsins tók við henni og okkur foreldrunum af ótrúlegri hjálpsemi og ósérhlífni og sinnti dagana og vikurnar á eftir af mikilli alúð þrátt fyrir álagið á starfsfólki og spítalanum í COVID. Það er frábæru starfsfólki deildarinnar að þakka að í dag er litli veikburða fyrirburinn, sem gat ekki andað eða nærst án aðstoðar, sterk og heilbrigð fjögurra ára stelpa sem ætlar sér og mun eflaust einn daginn sigra heiminn. Við erum svo þakklát Hringnum og vökudeildinni fyrir ómetanlega hjálp þeirra og getum vonandi núna gefið aðeins af okkur til baka.
Ég hef þrisvar hlaupið hálfmaraþon fyrir hin ólíku góðgerðafélög en þetta verður fyrsta heila maraþonið mitt. Ég vona að ég fái áheit þitt til að hvetja mig í að ná þeim áfanga - og í leiðinni stuðning fyrir það aðdáunarverða starf sem vökudeildin hefur lagt af mörkum til barna eins og yngri dóttur minnar í hálfa öld og mun vonandi gera um ókomna tíð.
Barnaspítalasjóður Hringsins, Vökudeild, Hringurinn
Hringurinn er kvenfélag, stofnað 1904. Félagið hefur að markmiði að vinna að líknar- og mannúðarmálum, sérstaklega í þágu barna.
New pledges













