Runners

Total collected
thank you for your support!
Ég ætla hlaupa 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu og safna áheitum fyrir HD Samtökin.
Huntington er arfgengur taugahrörnunarsjúkdómur sem við fjölskyldan þekkjum vel af eigin reynslu sem aðstandendur.
Tilgangur HD samtakanna er að vinna að auknum lífsgæðum og velferð þeirra sem haldnir eru Huntingtons sjúkdómnum með því að veita þeim og aðstandendum þeirra stuðning og stuðla að öflugri félags- og fræðslustarfsemi.
HD-Association of Iceland
HD-Samtökin á Íslandi eru stuðningssamtök fyrir sjúklinga og fjölskyldur sem berjast við Huntingtons sjúkdóminn, stofnað 2 2, 2022. Tilgangur félagsins er að vinna að auknum lífsgæðum og velferð þeirra sem haldnir eru Huntingtons sjúkdómnum eða erfðagreindir, með því að veita þeim og aðstandendum þeirra stuðning og stuðla að öflugri félags- og fræðslustarsemi. Samtökin vinna að því að tryggja meira fjármagn til sjúklinga, fjölskyldna og rannsókna. Samtökin hvetja einstaklinga sem verða fyrir áhrifum af Huntingtons sjúkdómnum, aðstandendur og aðra áhugasama til að skrá sig í félagið og njóta þannig góðs af því sem við höfum upp á að bjóða, sjá https://www.huntington.is. Við erum með facebook síðu https://www.facebook.com/Huntingtonisland/ þar sem hlauparar sem hlaupa fyrir félagið í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka, tilkynna sig. Við vonumst til að sjá sem flesta hlaupara þar inni. Eflum von í baráttunni gegn Huntingtons sjúkdómnum!
New pledges