10 K - General registration

Helga Hjálmrós Bjarnadóttir

Supporting Styrktarfélag Magnúsar Mána

Total collected

80,500 kr.
Donations are now closed,
thank you for your support!

Magnús Máni er 15 ára íþróttastrákur sem veiktist alvarlega  í kjölfar stuttra veikinda sumarið 2023. Magnús hafði verið með háan hita af og til í 2-3 vikur, hálsbólgu og hósta en ekkert athugavert kom í ljós í læknisskoðun viku áður en hann missti skyndilega máttinn og alla skynjun frá bringu og niður. Bakteríusýking hafði náð alla leið inn í mænuna og ollið þar bólgu með þessum alvarlegu afleiðingum.

Frá því í september 2023 hefur hann verið í gríðarlega mikilli og krefjandi endurhæfingu. Markmið hans frá upphafi hefur verið að ná sér að fullu, það markmið hefur ekkert breyst og hefur náðst mikill og góður árangur enda er Magnús Máni með ótrúlegan viljastyrk, þolinmæði og seiglu.

Því miður hefur íslenska heilbrigðiskerfið ekki upp á að bjóða bestu aðstöðu og þjónustu hvað varðar endurhæfingu til að hann geti náð sínu markmiði, þ.e. að ná sér að fullu. Ekki eru til nýjustu tæki og tól sem eru notuð í þeirri endurhæfingu sem hann þarf á að halda. Ekki var í boði sá mikli tími sem hann þarf í endurhæfingu á dag til að ná sínu markmiði og að sama skapi var nauðsynleg hvatning og trúí þeirri endurhæfingu sem í boði var ekki til staðar.

Vegna þessa hefur fjölskylda hans þurft að leita til erlendra aðila og farið erlendis með tilheyrandi raski á fjölskyldulífið til að ná þeim árangri sem Magnús hefur náð í dag. Jafnframt hefur þessu fylgt mikill kostnaður. Magnús Máni er farinn að ganga með göngugrind og á enn eftir töluverða vinnu til að ná fullum bata. Þátttaka Sjúkratrygginga Íslands er því miður aðeins lítið brot af þeim mikla kostnaði við þessa endurhæfingu Magnúsar og þess vegna ætlum við, fjölskyldan, vinir og aðrir að hlaupa fyrir Magnús í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 23. ágúst 2025 nk. og safna fyrir endurhæfingunni

Styrktarfélag Magnúsar Mána

Fjölskylda, vinir og þeir sem vilja ætla að hlaupa til styrktar endurhæfingu Magnúsar Mána.

New pledges

Pledge history

Ellen
Amount2,500 kr.
Áfram þú❤️
Margrét Ragnars
Amount5,000 kr.
Gangi þér vel!
Anna Þóra
Amount5,000 kr.
Áfram Helga, gangi þér vel!
Berglind
Amount2,000 kr.
No message
Biggi
Amount5,000 kr.
Er þetta flugvél, nei þetta er super Helga. 😍 kem að hvetja
Fríða Hrönn
Amount2,000 kr.
Gangi þér vel
Svala Jónsdóttir
Amount5,000 kr.
No message
Herdís Björnsdóttir
Amount1,000 kr.
Áfram Helga 💪🥰
Jóna og Einar
Amount5,000 kr.
Áfram þú!
Erna Rós
Amount5,000 kr.
Gangi þér vel🥰
Hjálmar Gunnarsson
Amount10,000 kr.
No message
Snæja
Amount2,000 kr.
Þú rúllar þessu upp - góða skemmtun 👏🏃‍♀️‍➡️
Hrafnhildur Kristjánsdóttir
Amount5,000 kr.
👏👏 áfram Helga 😊
Tinna
Amount1,000 kr.
No message
Guðmundur
Amount10,000 kr.
No message
Heiðar Bjarnason
Amount10,000 kr.
No message
Inga Magný Jónsdottir
Amount5,000 kr.
Vel gert Helga, þú rúllar þessu upp

Styrktaraðilar

  • Íslandsbanki
  • Corsa
  • Suzuki
  • 66 Norður
  • Gatorade