10 K - Regular registration

Díana Ósk Óskarsdóttir

Supporting Einstök börn Stuðningsfélag

Total collected

40,000 kr.
27%

Goal

150,000 kr.

Preferred Payment Method

Mastercard

Í ár hleyp ég fyrir Fróða, glaðlegan, einstakan 6 ára gamlan strák sem er bæði hugrakkur og forvitinn. Fróði fæddist með afar sjaldgæfan genagalla og hefur hann og fjölskylda hans fengið einstakan stuðning hjá félagi Einstakra barna.

Stuðningur þinn skiptir máli! Ég yrði þakklát ef þú myndir heita á mig þar sem ég ætla að hlaupa 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu.
Með þessu hlaupi langar mig að safna að lágmarki 150.000 krónum fyrir félagið Einstök börn, sem veitir dýrmætan stuðning börnum og ungmennum með sjaldgæfa sjúkdóma eða heilkenni og fjölskyldum þeirra.

Fróði elskar segulkubba, kirkjur, lyftur og tónlistarbox og er sífellt að læra eitthvað nýtt. Lífið hefur fært honum og fjölskyldu hans ýmsar áskoranir, en á þeirri vegferð hafa þau getað leitað til Einstakra barna. Þar hafa þau fundið stuðning, skilning og sterk tengsl við aðrar fjölskyldur í svipaðri stöðu.

Mig langar að styrkja það góða starf sem Einstök börn vinnur. Þú getur hjálpað með því að heita á hlaupið mitt, margt smátt gerir eitt stórt!  Allt rennur beint til Einstakra barna og styður starf þeirra.

Takk fyrir stuðninginn!

Einstök börn Stuðningsfélag

Einstök börn er stuðningsfélag barna með sjaldgæfa, alvarlega sjúkdóma. Félagið var stofnað þann 13. mars 1997 af foreldrum 13 barna, sem áttu ekki heima í neinum öðrum starfandi félagasamtökum. í dag veitir félagið mikla þjónustu og bíður upp á fræðslur og hópastarf fyrir börn,foreldra og aðra í fjölskyldunni. Það teljast í dag um hátt í 900 fjölskyldur í félaginu, og sumar fjölskyldur eru með fleiri en eitt langveikt barn. Það eru yfir 500 ólíkir sjúkdómar á skrá í félaginu, sem eiga það sameiginlegt að vera langvinnir og hafa varanleg áhrif á lífslíkur barnanna, og lífsgæði barnanna og fjölskyldna þeirra. Í erfiðustu tilfellunum er það vitað með vissu að börnin munu ekki lifa fram á fullorðinsár. Rekstur félagsins er þungur þar sem fjölgun hefur verið mikil, þörf á þjónustu og úrræðum stór aukist og mikil orka fer í að aðstoða foreldra við að leita að aðstoð og finna úrræði sem henta börnum þeirra þar sem kerfið er flókið.

New pledges

Pledge history

Natalie Antonsdóttir
Amount2,000 kr.
Áfram þú 🎯💕
Olof Sverrisdottir
Amount2,000 kr.
No message
Lucinda Friðbjörnsdóttir
Amount5,000 kr.
Frábært framtak hjá þér elsku Díana ❤️
Jens Eiriksson
Amount10,000 kr.
Svo flott hjá þér ástin mín 💖
Pálína
Amount5,000 kr.
No message
Arndís
Amount3,000 kr.
No message
Sunneva Olsen
Amount1,000 kr.
Margt smátt 🤍
Aron Heiðar
Amount1,000 kr.
No message
Amanda Líf Fritzdóttir
Amount1,000 kr.
No message
Guðbjörg
Amount3,000 kr.
No message
Sigrún
Amount2,000 kr.
Áfram Díana! Mjölniskempa og hlaupari💪
María og Vignir
Amount5,000 kr.
Áfram þú💕

Styrktaraðilar

  • Íslandsbanki
  • Corsa
  • Suzuki
  • 66 Norður
  • Gatorade