Runners

Total collected
Preferred Payment Method


Tinna Björg lést skyndilega þann 15. september árið 2023. Hún lætur eftir sig þrjú börn, þar á meðal Mikael Helga, 11 ára. Höggið er gríðarlega þungt fyrir fjölskyldu hennar og vini. Við vorum svo heppin að Örninn tók á móti honum med opnum örmum og þar hitti hann börn í svipuðum aðstæðum. Þar fá aðstandendur einnig fræðslu.
Mikael Helgi ætlar að hlaupa til minningar um mömmu sína líkt og í fyrra og safna fyrir Örninn, samtökin sem hafa reynst honum svo vel. Í fyrra safnaði hann 514.000 krónum.
,,Minningar- og styrktarsjóðurinn Örninn býður upp á helgardvöl og samverur fyrir börn og unglinga sem hafa misst náinn ástvin. Samverurnar eru þátttakendum að kostnaðarlausu en verkefnið reiðir sig á styrki auk þess sem allir starfsmenn eru sjálfboðaliðar.”
Við erum þakklát fyrir allan stuðning 🩵
Örninn - Minningar og styrktarsjóður
Örninn styður börn og unglinga á aldrinum 9 til 17 ára sem hafa misst foreldri eða annan náin ástvin. Félagið býður upp á helgardvöl og mánaðarlegar samverur fyrir börn í sorg. Þar vinnum við sorgarúrvinnslu, fáum fræðslu um ýmislegt tengt áföllum og missi ásamt því að hafa gaman saman og njóta lífsins. Samverurnar eru þátttakendum að kostnaðarlausu en verkefnið reiðir sig á styrki auk þess sem allir starfsmenn eru sjálfboðaliðar.
New pledges