Runners

Total collected
Goal
thank you for your support!
Ég valdi að hlaupa fyrir Einstök börn því það félag hefur gert mikið fyrir mig og dóttir mína. Félagið býður börnunum og foreldrum þeirra upp á ýmsa þjónustu, fræðslu og afþreyingu þeim að kostnaðarlausu. T.d hjálpa þau foreldrum að leita réttar síns, veitir þeim ráðgjöf og bendir þeim á þau úrræði sem í boði eru. Það eru haldnir mæðrahópar, feðrahópar, hannyrðahópur, spilakvöld og kransakvöld þar sem foreldrar geta mætt, rætt saman, fundið stuðning hjá foreldrum sem eru í sömu sporum og maður sjálfur, hlegið og haft gaman. Svo eru hópar fyrir börnin eins og Drekahópur fyrir börn 0-6 ára og Einstaki klúbburinn fyrir unglingana. Síðan eru haldnar ýmsar skemmtanir eins og sumarhátíð, jólaball, páskabingó og margt fleira. Maður er alltaf velkomin til þeirra í kaffi og spjall og það er alltaf tekið vel á móti manni.
Einstök börn Stuðningsfélag
Einstök börn er stuðningsfélag barna með sjaldgæfa, alvarlega sjúkdóma. Félagið var stofnað þann 13. mars 1997 af foreldrum 13 barna, sem áttu ekki heima í neinum öðrum starfandi félagasamtökum. í dag veitir félagið mikla þjónustu og bíður upp á fræðslur og hópastarf fyrir börn,foreldra og aðra í fjölskyldunni. Það teljast í dag um hátt í 900 fjölskyldur í félaginu, og sumar fjölskyldur eru með fleiri en eitt langveikt barn. Það eru yfir 500 ólíkir sjúkdómar á skrá í félaginu, sem eiga það sameiginlegt að vera langvinnir og hafa varanleg áhrif á lífslíkur barnanna, og lífsgæði barnanna og fjölskyldna þeirra. Í erfiðustu tilfellunum er það vitað með vissu að börnin munu ekki lifa fram á fullorðinsár. Rekstur félagsins er þungur þar sem fjölgun hefur verið mikil, þörf á þjónustu og úrræðum stór aukist og mikil orka fer í að aðstoða foreldra við að leita að aðstoð og finna úrræði sem henta börnum þeirra þar sem kerfið er flókið.
New pledges













