Runners

Total collected
Goal
Preferred Payment Method
Magnús Máni er 15 ára íþróttastrákur sem veiktist alvarlega í kjölfar stuttra veikinda sumarið 2023. Þá missti hann skyndilega máttinn og alla skynjun frá bringu og niður. Bakteríusýking hafði náð alla leið inn í mænuna og ollið þar bólgu með þessum alvarlegu afleiðingum.
Frá því í september 2023 hefur hann verið í gríðarlega mikilli og krefjandi endurhæfingu hérlendis og erlendis með tilheyrandi kostnaði. Markmið hans frá upphafi hefur verið að ná sér að fullu, það markmið hefur ekkert breyst og hefur náðst mikill og góður árangur enda er Magnús Máni með ótrúlegan viljastyrk, þolinmæði og seiglu.
Magnús Máni er nemendi á unglingastigi skólans þar sem ég er deildarstjóri svo ég hef fengið að fylgjast með þessum ótrúlega viljastyrk, þolinmæði og seiglu hans í návígi. Ég þurfti því sama sem engan umhugsunarfrest til að ákveða að taka þátt og vona að með ykkar stuðningi geti ég lagt eitthvað að mörkum til stuðnings Magnúsar Mána og hans fjölskyldu.
Styrktarfélag Magnúsar Mána
Fjölskylda, vinir og þeir sem vilja ætla að hlaupa til styrktar endurhæfingu Magnúsar Mána.
New pledges