Runners

Total collected
Goal
Preferred Payment Method
Ætla hlaupa fyrir Ara. Ari litli frændi minn lést núna í vor 2025 á sjúkrahúsi í Svíþjóð eftir baráttu við sýkingu í hjarta, baráttu við hjartagalla og tvö heilablóðföll. En Ari var úti að bíða eftir að fá nýtt hjarta og ný lungu.
Neistinn hefur stuðst við Ara og fjölskyldu í gegnum árin. En Neistinn styður börn og fullorðna með hjartagalla og aðstandendur þeirra á allskonar vegur og heldur uppi flottu félagsstarfi fyrir börn og ungmenni með hjartagalla.
Neistinn, Childrens heart foundation in Iceland
Markmið Neistans er m.a. að auðvelda aðgengi foreldra að upplýsingum sem snúa að hjartagöllum og hjartasjúkdómum barna og um meðferð þeirra. Þá sinnir Neistinn réttindum fjölskyldunnar og tilfinningalegum þörfum hennar, t.d. á upplýsingavef sínum, hjartagáttin.neistinn.is. Neistinn heldur úti öflugu félagslífi, fjölskyldum hjartabarna til skemmtunar og stuðnings og unglingastarfið þykir einkar líflegt. Þá stendur Neistinn að baki Styrktarsjóði Neistans, sem styrkir hjartafjölskyldur fjárhagslega.
New pledges