Í ár ætlar Minningarsjóður Jennýjar Lilju að safna áheitum fyrir nýstofnaðan sjóð sem Slysavarnarfélagið Landsbjörg sér um að annast. Tilgangur sjóðsins er að meðlimir björgunarsveita á öllu landinu, geti sótt sér aðstoðar fagfólks eða sálgæslu eftir erfið útköll eða upplifanir í útköllum. Meðlimir björgunarsveita Landsbjargar um allt land koma oft fyrstir á vettvang slysa eða hamfara og sinna þar fyrstu hjálp. Aðkoma á vettvangi getur verið erfið og úrvinnsla eftir þá upplifun er nauðsynleg. Mikilvægt er að meðlimir geti leitað í sjóð sem sér um allan kostnað, svo áhyggjur af kostnaði komi ekki í veg fyrir að meðlimir leiti sér aðstoðar. Dæmi eru um að meðlimir björgunarsveita sem hafa komið á slysstað hafi ekki geta sinnt björgunarstörfum eftir erfiðar upplifanir.
Hver sem er getur heitið á þá sem hlaupa fyrir góð málefni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka upphæð að eigin vali. Þannig er hægt að hvetja hlauparana til dáða og láta jafnframt gott af sér leiða.