Ljósið hefur hefur veitt mér og mínum ómetanlegan stuðning í gegnum mín veikindi og er ástæða þess að ég get í dag farið þessa vegalengd. Þar fæ ég tækifæri til að rækta líkama og sál.
Hver sem er getur heitið á þá sem hlaupa fyrir góð málefni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka upphæð að eigin vali. Þannig er hægt að hvetja hlauparana til dáða og láta jafnframt gott af sér leiða.