Í ár ætla ég að hlaupa til að fagna lífinu og heilsunni en á sama tíma að safna fyrir Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis minni yndislegu systur til heiðurs.
Hver sem er getur heitið á þá sem hlaupa fyrir góð málefni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka upphæð að eigin vali. Þannig er hægt að hvetja hlauparana til dáða og láta jafnframt gott af sér leiða.