Ég ætla að hlaupa mitt fyrsta hálfmaraþon í ár og styrkja parkinsonsamtökin í leiðinni. Afi minn glímdi við þennan sjúkdóm og móðurbróðir minn glímir við hann í dag.
Hver sem er getur heitið á þá sem hlaupa fyrir góð málefni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka upphæð að eigin vali. Þannig er hægt að hvetja hlauparana til dáða og láta jafnframt gott af sér leiða.